Á hvaða leið er ríkisstjórnin?

Það er nauðsynlegt að staðsetja sig af og til í lífinu. Reyna að komast að því hvort maður er á réttri leið eða rangri ef þá yfir höfuð á leiðinni eitthvað. Þannig nær maður að stilla sig af og rétta stefnuna af ef þurfa þykir.

Að undanförnu hefur verið hart sótt að ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar úr mörgum áttum. Því er rétt að staldra aðeins við, líta yfir sviðið og kanna hvort aðförin að stjórninni bendi til þess að hún sé á rangri braut eða réttri.

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar forsetinn hefur í hótunum við ríkisstjórnina?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar biskupinn yfir Íslandi kemur sér undan því að vera við þingsetningu?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar forseti Hæstaréttar og handhafi forsetavalds og hæstaréttardómarar sniðganga þingsetningu?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar talsmenn lögreglunnar snúast gegn henni og finnst vont lögreglan hafi verið neydd til að verja þinghúsið, þingmenn og gesti þingsins fyrir ofbeldi?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar fyrrverandi dómsmálaráðherra telur það henni helst til foráttu að hún vilji breyta stjórnarskránni?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar formaður sjálfstæðisflokksins hvetur flokksmenn sína til að fjölmenna til að mótmæla og reyna að koma stjórninni frá í skjóli þess að lögreglan muni væntanlega ekki vera til staðar?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar stjórnarandstaðan (Hreyfingin undanskilin) vill koma í veg fyrir að þjóðin setji sér nýja stjórnarskrá?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar sjálfstæðisflokkurinn leitar allra leiða, þekktra sem óþekktra, hefðbundinna sem óhefðbundinna til að koma sjálfum sér aftur til valda?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar Morgunblaðið froðufellandi hefur það eina markmið að koma ríkisstjórninni frá?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar forysta framsóknarflokksins stígur á þá þingmenn sína sem vilja leggja góðum málum lið og vísar þeim úr áhrifastöðum fyrir flokkinn?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar fjármálafyrirtækin snúast gegn henni?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar skilanefnd gamla Landsbankans leggst gegn henni?

Á hvaða leið er ríkisstjórnin þegar núverandi forysta Samtaka atvinnulífsins vill hana frá?

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna er þar á vegi stödd að  allir þekktustu og hörðustu svartstakkar íhaldsins og fleiri á þeirri línunni hafa sameinast í andstöðu sinni gegn henni, vilja hana frá tafarlaust, geta ekki leynt óbeit sinni á stjórnarliðum og hafa lýst yfir pólitísku stríði við stjórnvöld. Íhald allra stétta hefur sameinast gegn ríkisstjórninni.

Það er góður staður að vera á fyrir ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna.