Árni Páll til liðs við stjórnina?

Það var áhugavert að hlusta á Árna Pál Árnason, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar, ræða um Brexit í Silfrinu í morgun (byrjar á 55:40). Árni Páll býr yfir ágætri þekkingu á því máli sem og öðru sem snýr að samstarfi landa Evrópu. Umfjöllun hans um málefni Brexit sem og ESB almennt er trúverðug eins og heyra mátti í morgun og kom einnig fram í ágætum greinaflokki hans um áhrif Brexit á Ísland sem hann sendi frá sér undir lok síðasta árs.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur engin áform uppi um að sækja um aðild að eða efla samskipti Íslands við ESB frekar. Allir stjórnarflokkarnir eru því andvígir þó vissulega séu skiptar skoðanir innan þeirra um þau mál, aðallega innan Vinstri grænna og sjálfstæðisflokks. Það breytir því ekki að stjórnin þarf að takast af alvöru og skynsemi á við þau verkefni sem upp kunna að koma á þessum vettvangi. Brexit er eitt slíkt og það af stærri gerðinni. Það væri fengur í því fyrir stjórnina að fá Árna Pál Árnason til liðs við sig í þeim tilgangi.
Fáir eru betur til þess fallnir.