Um þetta verður næsta ríkisstjórn mynduð.

Fjárlagafrumvarp næsta árs verður lagt fram á Alþingi á morgun. Stjórnendur Landspítalans hafa verið upplýstir um hvað þeirra bíður í frumvarpinu og hafa þegar ákveðið að leita til heilbrigðisráðherra eftir tillögum um niðurskurð í rekstri spítalans. Framhaldsskólarnir eru enn sveltir líkt og verið hefur, rétt eins og háskólarnir og skólakerfið allt. Framlög til samgöngumála verða enn langt frá því að fullnægja þörfinni á viðhaldi og uppbyggingu vegamála um allt land ef ekki verður gripið til ráðstafana. Forystumaður sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hótar enn frekari niðurskurði í framlögum til velferðarkerfisins ef þingið fylgir ekki þegjandi og hljóðalaust stefnu hægriflokkanna í fjármálum ríkisins.
Á þessu hefur strandað í stjórnarmyndunarviðræðum. Vinstri græn hafa í þeim lagt áherslu á að fjármagna rekstur velferðarkerfisins og á innviðum samfélagsins með öruggum tekjum. Aðrir flokkar hafa neitað okkur um það. Það verður ekki flokkað sem samskiptavandi heldur er um ólíkar pólitískar áherslur að ræða.
Annaðhvort fjármögnum við heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfið núna, eða því verður endanlega rústað.
Um það verður næsta ríkisstjórn mynduð.