Allt hefur sinn tilgang

Einu sinni réðu skipstjórar því nánast einir hvað þeir fiskuðu, hvar og hve mikið. Þeir þóttu standa sig best sem færðu mest að landi eftir fæsta daga á sjó. Það er talsvert langt síðan þetta breyttist. Í dag eru það eigendur skipanna, útgerðarmennirnir, sem ráða meiru um það en skipstjórar hvað skal veiða og hve mikið þótt samstarf þeirra á milli sé það sem á endanum er lagt til grundvallar. Það er hið eðlilegasta mál enda hafa þessir aðilar sameiginlegt markmið að vinna að.
Þeir útgerðarmenn sem ráða yfir morgunblaðinu hljóta að hugsa eins í þeim rekstri. Ritstjórinn er þeirra skipstjóri, fréttamennirnir hásetarnir á dekkinu. Eigendurnir leggja línurnar með ritstjóranum um hvernig blaðið skuli rekið og hvernig það á að fjalla um mál með það í huga að ná fram markmiðum sínum með útgáfu blaðsins. En á endanum eru það eigendurnir sem ráða. Skiljanlega. Þeirra markmið er fyrst og síðast að blaðið skili þeim árangri sem að er stefnt í rekstrinum sem er að gæta hagsmuna eigendanna umfram allt annað og tala máli þeirra.
Þetta er ágætt að hafa í huga vegna umfjöllunar blaðsins um frambjóðendur til embættis forseta Íslands.
Allt hefur sinn tilgang.