Seðlabankinn og Samherji

Þetta er athyglisverð frétt. Níu mánuðum eftir eina stærstu húsleit sem gerð hefur verið á Íslandi er enn á huldu um hvað málið snýst, hver glæpurinn kann að vera. Í fyrstu var talað um að Samherji væri að svindla á útflutningi á nokkur hundruð tonnum af karfa með því að selja hann á lægra verði en aðrir úr landi og taka virðisaukann út erlendis, jafnvel í gegnum eigin fyrirtæki. Samkvæmt fréttinni mætti ætla að Seðlabankinn hafi fyrirtækið einnig grunað um að svindla á útflutningi á bleikju. Ég tók mig til sl. vor og kafaði aðeins ofan í þetta mál, spurði spurninga, leitaði mér upplýsinga og nýtti mér þekkingu mína. Niðurstaða mín var sú í stuttu máli að fyrirtæki af þeirri stærðargráðu sem Samherji er stendur ekki í því að svindla á nokkrum tonnum af karfa eða bleikjutittum. Það er of mikið í húfi til að leggja fyrirtækið allt undir fyrir svo lítið. Stjórnendur fyrirtækisins eru einfaldlega ekki svo klikkaðir. Það þarf líka of margra starfsmenn með einbeittan brotavilja þvert á landamæri til að þannig svindl sé gerlegt. Ég komst að því að það væri tvennt í stöðunni sem gæti skýrt þetta mál. Annars vegar að Seðlabankinn hafi beinlínis rangt fyrir sér og hefði ekkert mál í höndunum og hins vegar að málið snerist um allt annað en útflutning á fiski. Ég veit ekki frekar en aðrir hvort er. (Svo getur líka vel verið að ég hafi rangt fyrir mér.)"