Stærsta EKKI frétt vikunnar

Það hefur verið gert mikið úr því að fjármálaráðherra neiti að gefa upp söluverð á hlut ríkisins í Byr. Því er jafnvel haldið fram að hann muni liggja á því eins og ormur á gulli og ganga gegn öllum yfirlýsingum um opna og gegnsæa stjórnsýslu. Þó hefur ráðherrann ekkert slíkt sagt né neitt í þá veru eftir honum haft. Þetta var það sem fjármálaráðherra sagði um málið í fréttum í gær: "Fjármálaráðherra segir gott að Íslandsbanki hafi keypt hlut ríkisins í Byr. Hagstæðasta tilboðinu hafi verið tekið og að ríkið muni ekki tapa nema óverulegum fjárhæðum á sölunni." Er eitthvað hér sagt sem túlka megi með þeim hætti að söluverðinu verði haldið leyndu fram í rauðann dauðann?
Meðalgáfaður fréttamaður ætti að gera sér grein fyrir því að útgjöld eða tekjur ríkisins eru opinber og ómögulegt að halda leyndu jafnvel þó svo að menn reyndu hvað þeir gætu í því. Menn komust reyndar ansi nálægt því við einkavinavæðingu bankanna á sínum tíma þegar allskonar söluverð var skáldað upp sem á endanum var aldrei greitt (a.m.k. hvað Landsbankann varðar) og hefði auðvitað átt að skila sér í reikningum ríkisins en gerði hinsvegar aldrei.
Auðvitað er söluverðið opinbert og um það verður upplýst þegar salan er endanlega gengin í gegn. Söluverðið mun koma fram í ríkisreikningi ársins eins og vera ber. Nema hvað? Hvaða ástæða ætti annars að vera fyrir því að halda söluverðinu leyndu?
Aðalmálið er að salan á Byr er mjög jákvæð fyrir skattgreiðendur sem losna undan því að ábyrgjast innstæður bankans þar sem einkaaðili hefur keypt bankann og þar með yfirtekið ábyrgðirnar. Út frá þeim sjónarhóli ættu talsmenn skattgreiðenda að fagna sölunni í stað þess að hnýta í hana. Ríkið er þó ekki að græða á sölunni, því miður heldur mun salan líklega vera á pari við útlagan kostnað eins og fram hefur komið.
Þeir þingmenn sem eru við það að missa þvag út af þessu máli og telja það svo alvarlegt að kalla verði saman neyðarfundi í nefndum þingsins vegna þess ættu að nýta tíma sinn í annað.
Jafnvel að upplýsa þjóðina um sín eigin óupplýstu pólitísku fjármál.