Gæti orðið farsæl ríkisstjórn

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist ekki útiloka, að mynda ríkisstjórn með sjálfstæðisflokki og framsókn. En yrði það góð ríkisstjórn?
Ríkisstjórn þessara þriggja flokka hefði sex þingmenn umfram stjórnarandstöðuna og því með traustan meirihluta á þingi. Þinglið hennar yrði ágæt blanda af pólitískum reynsluboltum og nýjum þingmönnum sem gætu auðveldlega staðið af sér atlögur lýðskrumara í stjórnarandstöðu. Ríkisstjórn þessara þriggja flokka myndi ekki ráðast í miklar eða umdeildar kerfisbreytingar hvort sem um væri að ræða í stjórnarskrármálinu, í sjávarútvegi eða landbúnaðarmálum svo dæmi séu tekin. Hún myndi þess í stað einbeita sér að minna umdeildum málum og að treysta frekar heilbrigðis- og velferðarkerfið. Ríkisstjórn Vinstri grænna, sjálfstæðisflokks og framsóknar hefði tækifæri til að gera góða hluta samhliða því að skapa pólitískan stöðugleika í landinu.
Forsenda fyrir farsælu samstarfi þessara flokka er að ríkisstjórn þeirra verði undir forystu Katrínar Jakobsdóttur.
Það hljóta formenn sjálfstæðisflokks og framsóknar að skilja.